KR-A sigraði Víking-D í leik um sæti í 1. deild í haust
KR-A sigraði Víking-D 4-3 í háspennuleik um sæti í 1. deild á næsta keppnistímabili í TBR-húsinu í kvöld. Úrslitin réðust í oddalotu í 7. og síðasta leiknum þegar Hlöðver Steini Hlöðversson lagði Ísak Indriða Unnarsson. KR verður því með tvö lið í 1. deild karla á næsta ári, Víkingur tvö lið og BH og HK með sitt hvort liðið.
Það er nýmæli að leika um sæti í 1. deild en þessi lið léku þar sem KR-A varð í 5. sæti í 1. deild karla en Víkingur-D í 2. sæti í 2. deild.
Leikskýrsla
Víkingur-D – KR-A 3-4
- Kamil Mocek – Breki Þórðarson 0-3 (2-11, 8-11, 7-11) 0-1
- Ingi Darvis Rodriguez – Hlöðver Steini Hlöðversson 3-2 (12-10. 9-11, 9-11, 11-8, 11-3) 1-1
- Ísak Indriði Unnarsson – Pétur Marteinn Urbancic Tómasson 0-3 (2-11, 5-11, 7-11) 1-2
- Ingi/Ísak – Breki/Pétur 3-0 (13-11, 11-6, 11-8) 2-2
- Ingi Darvis Rodriguez – Breki Þórðarson 3-0 (11-8, 11-6, 11-8) 3-2
- Kamil Mocek – Pétur Marteinn Urbancic Tómasson 0-3 (3-11, 10-12, 6-11) 3-3
- Ísak Indriði Unnarsson – Hlöðver Steini Hlöðversson 2-3 (5-11. 12-10, 6-11, 11-7, 6-11) 3-4
ÁMU