Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

KR-C ósigrað í 2. deild kvenna eftir fyrri hluta keppninnar

Fyrri hluti deildakeppni kvenna var leikinn í Íþróttahúsi Hagaskóla sunnudaginn 10. nóvember. Þrjú lið léku í 1. deild kvenna og þrjú í 2. deild kvenna.

C-lið KR, sem er öðlingaliðið, er ósigrað í 2. deild kvenna eftir fyrri umferðina. KR-C vann KR-B 6-3 og lið Garps 6-1.
KR-B vann Garp 6-1.

KR-C er með forystu eftir fyrri hluta keppninnar með 4 stig, KR-B hefur 2 stig og Garpur ekkert stig.

Úrslit úr einstökum viðureignum verða aðgengileg á vef Tournament Software fljótlega.

Seinni hluti 2. deildar kvenna verður leikinn 29. mars, og þá ræðst hvaða lið verður deildarmeistari.

Forsíðumynd frá Finni Hrafni Jónssyni af liði KR-C.

Aðrar fréttir