KR-F efst í suðurriðli 4. deildar eftir leikina 11. janúar
Þrjár umferðir voru leiknar í suðurriðli 4. deildar karla í Íþróttahúsi Hagaskóla sunnudaginn 11. janúar, alls níu leikir.
Þegar tvær umferðir eru eftir í riðlinum hefur KR-F tekið forystu með 19 stig en BH-D og HK-D hafa 16 stig hvort félag. Öll hafa leikið 10 leiki. Þá koma Selfoss-B með 10 stig eftir 10 leiki, Garpur-B með 8 stig eftir 11 leiki, Garpur-A er með 3 stig eftir 10 leiki og Umf. Vísir er án stiga eftir 11 leiki.
Úrslit úr einstökum viðureignum:
Selfoss-B – Garpur-A 6-0
Garpur-B – Umf. Vísir 6-4
BH-D – KR-F 2-6
Umf. Vísir – Selfoss-B 0-6
Garpur-A – HK-D 1-6
KR-F – Garpur-B 6-1
HK-D – Umf. Vísir 6-0
Selfoss-B – KR-F 4-6
Garpur-B – BH-D 4-6
Forsíðumynd af Þórunni Erlu úr KR-F úr myndasafni.


