Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

KR vann flesta Íslandsmeistaratitla keppnistímabilið 2025-2026

Keppnitímabilið 2025-2026 var keppt um 51 Íslandsmeistaratitil, þremur fleiri en árið áður. Keppt var um 15 titla í fullorðinsflokkum, 23 í unglingaflokkum og 13 í öldungaflokkum. Í fullorðinsflokki var í fyrsta skipti leikið í 4. deild og keppt var í tveimur fleiri unglingaflokkum en árið áður.

KR vann flesta titla félaga, 18,5 talsins, BH og Víkingur unnu 7 titla hvort félag og HK vann 6 titla. Akur, BR, Dímon, Garpur, ÍFR, Umf. Laugdæla, Umf. Selfoss og Umf. Vísir unnu 0,5-4 titla hvert félag og dreifuðst titlarnir því í allt á 12 félög, fleiri en undanfarin ár.

Víkingar unnu flesta titla í fullorðisflokkum, 5 talsins en BH og KR unnu fjóra titla hvort félag. KR vann flesta titla í unglingaflokkum, 8 talsins og í öldungaflokkum, 6,5 titla.

KR vann líka flesta Íslandsmeistaratitla keppnistímabilið 2024-2025, en BH árið 2023-2024 og Víkingur 2022-2023.

Alls dreifðust Íslandsmeistaratitlarnir á 63 einstaklinga, mun fleiri en undanfarin ár. Helena Árnadóttir, KR vann flesta titla einstaklinga eða fimm alls. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR og Ingi Darvis Rodriguez, Víkingi, unnu fjóra titla hvort. Benedikt Aron Jóhannsson, Víkingi, Benedikt Darri Malmquist, HK, Brynjar Gylfi Malmquist, HK, Guðný Lilja Pálmadóttir, Garpi, Guðrún Gestsdóttir, KR, Heiðar Leó Sölvason, BH, Lúkas André Ólason, KR og Nevena Tasic, Víkingi unnu þrjá titla hvert.

Alls voru veitt 177 verðlaun á Íslandsmótunum þetta árið. KR fékk langflest verðlaun eða 67,5, HK fékk 22,5 verðlaun, BH 22, Garpur 17,5 og Víkingur 14. Að auki fengu keppendur úr Akri, BM, BR, Dímoni, ÍFR, Umf. Gnúpverja, Umf. Laugdæla, Umf. Selfoss, Umf. Stokkseyrar og Umf. Vísi verðlaun á Íslandsmótum eða í deildakeppnum keppnistímabilsins. Umf. Gnúpverja, Umf. Stokkseyrar og Umf. Vísir eru nýliðar á þessum lista og er ánægjulegt að sjá fleiri félög vinna til verðlauna á Íslandsmótum og í deilda- og flokkakeppni.

Sjá meðfylgjandi skjal: Islandsmeistaratitlar_2026

Uppfært Íslandsmeistaratal með meisturum ársins er að finna undir Íslandsmeistaratal ofarlega á vefsíðunni, en er líka aðgengilegt hér: Islandsmeistaratal_1971-2026

Forsíðumynd af Helenu úr myndasafni.

Aðrar fréttir