Kvennalandsliðið leikur í norsku deildinni um helgina
Íslenska kvennalandsliðið leikur í norsku deildinni í helgina. Þessa helgina er leikið í Þrándheimi en þetta er þriðja helgin sem er leikið í deildinni í vetur.
Liðið skipa að þessu sinni þær Aldís Rún Lárusdóttir, KR, Nevena Tasic, Víkingi og Sól Kristínardóttir Mixa, BH.
Liðið er án sigurs í deildinni eftir tvær helgar, en margir einstaklingsleikir hafa unnist.
Hér er hægt að fylgjast með gengi liðsins: https://bordtennis.no/seriespill/?avd=Dame