Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Kynning á starfsemi borðtennisakademíu B75 í Danmörku. Miðvikudaginn 20. nóvember í ÍSÍ í laugardal

Í næstu viku kemur til landsins Peter Ernst Sundbæk en hann er stjórnarmaður í danska borðtennissambandinu og fyrirsvarsmaður borðtennisakademíu í Hirsthals í Danmörku.

Peter er á landinu til að kynna starfsemina í Hirthals og Hjörring. Bjóða þeir upp á nám í grunnskóla og menntaskóla, stífar æfingar í borðtennis og gistiaðstöðu. Hafa nokkrir íslenskir krakkar þegar farið í þessa akademíu sem reynst hefur vel.

Kynning fer fram á Akademíunni nk miðvikudag í sal C á 2. hæð í ÍSÍ í Laugardal nk miðvikudag 20. nóvember kl 18.00. Er kynningin öllum opin, bæði iðkendum og forráðendum.

E

Aðrar fréttir