Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Landsdómara-, þjálfaranámskeið og opið hús á Vestfjörðum 21.-22.2

Helgina 21.-22. febrúar verður dómaranámskeið, þjálfarakennsla og opið hús á þremur stöðum á Vestfjörðum: Patreksfirði, Drangsnesi og Hólmavík. Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson sér um viðburðina í samráði við svæðisfulltrúa UMFÍ á Vestfjörðum.

Fyrirhugað er að Strandirnar verði heimsóttar 21. febrúar en að landsdómaranámskeiðið verði haldið 22. febrúar á Patreksfirði.

Nánari tímasetning er þannig að þjálfaranámskeiðið fyrir þjálfara á Ströndum verður á Drangsnesi kl. 11 á laugardaginn 21. febrúar og svo verður opið hús fyrir börn og almenning, fyrst kl. 12 í Félagsheimilinu Baldri á Drangsnesi og svo kl. 14 í Íþróttahúsinu á Hólmavik.

Landsdómaranámskeiðið verður kl. 10 sunnudaginn 22. febrúar í Íþróttahúsinu Bröttuhlíð á Patreksfirði. Opið hús verður í Bröttuhlíð kl. 13.30 sama dag.

Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar inni í fréttinni eru réttar en dagsetningarnar á myndunum sem fylgja eru ekki allar réttar.

BTÍ og Vestfjarðafélögin fengu 1 m.kr. styrk í þetta verkefni úr Hvatasjóði og hafa svæðisfulltrúarnir Birna og Páll Janus komið sterk inn við skipulagninguna.

Birna og Páll Janus hafa kortlagt hversu mörg borð eru á hverjum stað og tíu íþróttafélög á Vestfjörðum hafa lýst yfir áhuga á þátttöku og leita að umsjónaraðilum.

Fyrirhugað er að fara þrjár til fjórar ferðir vestur í vor. Útbreiðslunefnd BTÍ auglýsir eftir áhugasömum einstaklingum til að fara einu sinni eða tvisvar í samskonar ferð og Jóhannes fer nú. Áhugasöm sendi tölvupóst á [email protected].

Á Patreksfirði eru þegar æfingar í gangi en á hinum tveimur stöðunum eru einstaklingar sem hafa áhuga á að byrja að þjálfa.

Tvö önnur flott borðtennisverkefni fengu líka góða styrki í sömu úthlutun úr Hvatasjóði. Umf. Vísir fékk úthlutun til að halda æfingar og borðtennishelgi fyrir börn með fatlanir. Þá fékk Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík styrk vegna borðtennis fyrir hreyfihamlaða.
https://www.umfi.is/media/ik4dbh3i/hvatasjóður-úthlutun-nóvember-2025.pdf

Nánari upplýsingar um svæðisfulltrúa UMFÍ: https://www.umfi.is/svaedisstoedvar/addragandi-og-skipulag/svaedisfulltruar/

Aðrar fréttir