Landsliðið á Arctic mótinu á Grænlandi tilkynnt
Ólafur Rafnsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt liðið sem verður sent á Arctic mótið, sem haldið verður í Nuuk á Grænlandi um hvítasunnuna (18-20. maí).
Send verða tvö karlalið og tvö kvennalið, þar sem B-liðið í hvorum flokki er unglingalið. Íslandsmeistararnir Magnús Gauti og Stella Karen leika með A-liðunum þótt þau séu enn í unglingaflokki.
Konur
A-lið
- Aldís Rún Lárusdóttir, KR
- Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR
- Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi
B-lið
- Ársól Clara Arnardóttir, KR
- Lára Ívarsdóttir, KR
- Þórunn Ásta Árnadóttir, Víkingi
Karlar
A-lið
- Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, BH
- Magnús Jóhann Hjartarson, Víkingi
- Magnús Gauti Úlfarsson, BH
B-lið
- Birgir Ívarsson, BH
- Ellert Kristján Georgsson, KR
- Ingi Darvis Rodriquez, Víkingi
Forsíðumynd af Inga frá RIG 2018.
ÁMU/II