Landsliðið tapaði leikjum sínum í liðakeppni í dag
Íslensku karlarnir töpuðu leikjum sínum í liðakeppni á Norður-Evrópumótinu í borðtennis í dag. Fyrst léku þeir við Danmörku og töpuðu 0-3 og síðan við Noregur og töpuðu sömuleiðis 0-3.
Magnús K. Magnússon vann einu lotu dagsins þegar hann tók lotu af Dananum Claus Schoug Nielsen.
Svíar urðu Norður-Evrópumeistarar í karlaflokki eftir 3-0 sigur á Dönum.
Í kvennaflokki sigruðu Svíar sömuleiðis en lögðu Noreg 3-0 í úrslitum.
ÁMU
![](https://bordtennis.is/skjalasafn/myndir/magn%C3%BAs%20k%202011.jpg)
Magnús K. Magnússon var eini Íslendingurinn sem vann lotu á Norður-Evrópumótinu í dag.