Leikið í 1. deild kvenna í vikunni
Sjötta umferð í 1. deild kvenna fer fram í vikunni (viku 6). Það er fyrsta umferðin í seinni hluta keppninnar. Einnig verður leikinn leikur úr 5. umferð, sem ekki hafði farið fram.
Eftirtaldir leikir fara fram:
Mán 3. febrúar HK – BH (leikur úr 5. umferð)
Mið. 5. febrúar KR-A – KR-B
Mið. 5. febrúar HK – Víkingur
Eftir fyrri umferðina er staðan sú að KR-A hefur forystu með 8 stig eftir 4 leiki. Víkingur er í 2. sæti með 6 stig. HK og KR-B hafa 2 stig en HK á leik til góða við BH, sem rekur lestina með ekkert stig.
Stöðuna í 1. deild kvenna má sjá á vef Tournament Software http://www.tournamentsoftware.com undir Íslandsmót í liðakeppni 2013-14.
ÁMU