Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Leikmenn úr unglingalandsliðinu leika í Belgíu 18.-20. maí

Leikmenn úr unglingalandsliðshópnum héldu til Hasselt í Belgíu í dag, þar sem þau leika á International Youth Cup. Mattia Contu, unglingalandsliðsþjálfari og Ingimar Ingimarsson, þjálfari hjá BH eru með hópnum á mótinu, auk tveggja foreldra.

Á mótinu er bæði leikið í liðakeppni og einliðaleik og skipt í flokka A til E eftir fæðingarári keppenda.

Eftirtaldir leikmenn keppa á mótinu:

Alexander Chavdar Ivanov, BH
Benedikt Jiyao Davíðsson, Víkingi
Benedikt Aron Jóhannsson, Víkingi
Darian Adam Róbertsson Kinghorn, HK
Eiríkur Logi Gunnarsson, KR
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
Heiðar Leó Sölvason, BH
Helena Árnadóttir, KR
Kristján Ágúst Ármann, BH
Lúkas André Ólason, KR

Heimasíða mótsins: https://ttchasselt.be/international-youth-cup/
Hér má sjá drátt í riðla og úrslit, en líka verða birtar fréttir af gengi leikmanna á miðlum BTÍ.

Forsíðumynd af hópnum frá Ingimar Ingimarssyni.

Aðrar fréttir