Leikmenn úr unglingalandsliðshópnum leika á Mega Cup 13.-14. júní
Leikmenn úr unglingalandsliðshópnum taka þátt í Mega Cup í Noregi 13.-14. júní. Keppt verður í tveggja manna liðakeppni laugardaginn 13. júní og í einstaklingskeppni sunnudaginn 14. júní.
Klúbbur Sindre Åteigen landsliðsþjálfara, B72, býður svo upp á æfingabúðir á mánudegi og þriðjudegi fyrir hópinn.
Íslenskir leikmenn og lið á Mega Cup:
Undir 19 ára:
Guðný Lilja Pálmadóttir, Garpi
Sóldís Lilja Sveinsbjörnsdóttir, Garpi
Heiðar Leó Sölvason, BH
Viktor Daniel Pulgar, KR
Hergill Frosti Friðriksson, BH átti að spila með Ibrahim Hossam Al-Masry, BR en hann forfallaðist, svo Hergill leikur með norska leikmanninum Ayaan Khan.
Undir 15 ára:
Adam Lesiak, Víkingi
Benedikt Darri Malmquist, HK
Andri Sigurjón Hrundarson, HK
Jörundur Steinar Hansen, HK
Benjamín Bjarki Magnússon, BH
Guðmundur Ólafur Bæringsson, Garpi
Björn Kári Valsson, HK
Hjörleifur Brynjólfsson, HK
Brynjar Gylfi Mamlquist, HK
Sindri Karl Heimisson, HK
Vefsíða mótsins: https://ttadmin.webzenter.com/PoolResultTable/Index/377
Á forsíðumyndinni má sjá hópinn, ásamt Bæring Jóni Guðmundssyni fararstjóra og þjálfara og Darian Adam Róbertssyni Kinghorn og Sól Kristínardóttur Mixa þjálfurum.
Hjörleif Brynjólfsson vantar á myndina því hann ferðast ekki út á mótið með hópnum.


