Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Lið BH bikarmeistari 2022

Bikarkeppni félaga 2022 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu 3. desember með glæsibrag og öllum til sóma. Sjö lið voru skráð til keppni frá Víkingi, KR, BR og BH.

Í undanúrslitum lék lið Víkings-A, skipað Inga Darvis Rodriguez, Nevenu Tasic og Hlyni Sverrissyni gegn KR-1, skipað Þóru Þórisdóttur, Elvari Kjartanssyni og Ellert Georgssyni. Víkingur-A sigraði lið KR-1 4-1.

Í hinum undanúrslitunum lék lið BH-A, skipað Birgi Ívarssyni, Sól Kristínardóttur Mixa og Magnúsi Gauta Úlfarssyni gegn KR-2, skipað Aldísi Rún Lárusdóttur, Gesti Gunnarssyni og Karli Anderssyni Claesson. BH-A sigraði lið KR-2 4-0.

Úrslitaleikurinn var því á milli Víkings-A og BH-A. Um mjög skemmtilegan hörkuleik var að ræða þar sem BH sigraði að lokum 4-3 og er því bikarmeistari 2022.

Leikir í úrslitaleiknum:

Víkingur-A – BH-A 3-4

Hlynur – Magnús 0-3

Ingi Darvis – Birgir 3-0

Nevena – Sól 2-3

Tvíliðaleikur: Ingi/Hlynur – Birgir/Magnús 2-3

Tvenndarleikur: Ingi/Nevena – Magnús/Sól 3-2

Ingi Darvis – Magnús Gauti  3-2

Hlynur – Birgir 1-3

Byggt á fétt frá Borðtennisdeild Víkings og myndirnar koma þaðan.

Aðrar fréttir