Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Lið KR-C ósigrað í 2. deild karla eftir fjórar umferðir

Þriðja og fjórða umferð í 2. deild karla fóru fram laugardaginn 17. október í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.

Staðan í deildinni að loknum fjórum umferðum er sú að KR-C er ósigrað og hefur 8 stig. BH-C kemur næst með 6 stig, HK-B hefur 4 stig, BR-B er með 3 stig, BR-A hefur 2 stig og Selfoss-A er með 1 stig.

Úrslit úr einstökum viðureignum:

HK-B – Selfoss-A 6-2
KR-C – BR-A 6-4
BR-B – BH-C 2-6
BR-B – HK-B 6-0 (HK-B gaf leikinn)
Selfoss-A – KR-C 1-6
BH-C – BR-A 6-1

Úrslit úr einstökum leikjum verða fljótlega lesin inn á vef deildarinnar hjá Tournament Software, sjá https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=F5C527AC-49A2-47EC-B258-8A1C494E16B5

Á forsíðumyndinni, sem Auður Tinna Aðalbjarnardóttir tók, má sjá lið Selfoss-A.

Aðrar fréttir