Lið Víkings varð í gærkvöldi Íslandsmeistarar 2014 í 1. deild karla og kvenna.
Karla lið Víkings sigraði lið KR 4 1 í úrslitaleik.
Magnús K. Magnússon byrjaði á því að sigra Gunnar Snorrason 3 0. Magnús Finnur Magnússon tapaðí síðan fyrir Breka Þórðarsyni 1 3. Daði Freyr Guðmundsson sigraði því næst Kjartan Briem 3 1.
Tvíliðaleikinn sigruðu síðan Daði og Magnús þá Gunnar og Kjartan 3 1. Magnús K. Magnússon sigraði Breka Þórðarson 3 0.
Lið Íslandsmeistara Víkings er skipað þeim Magnúsi K. Magnússyni, Daða Freyr Guðmundssyni, Magnúsi F. Magnússsyni, Óla P. Geirssyni og Ársæli Aðalsteinssyni.
Kvenna lið Víkings sigraði lið KR 3 0 í úrslitaleik.
Lið Íslandsmeistara Víkings er skipað þeim Evu Jósteinsdóttur, Lilu Rós Jóhannesdóttur og Eyrúnu Elíasdóttur.
Lilja Rós Jóhannesdóttir byrjaði á því að sigra Guðrúnu Björnsdóttur 3 1. Leik nr. 2 sigraði Eva Jósteinsdóttir Aldísi Rún Lárusdóttur 3 1. Tvíliðaleikinn sigruðu síðan Eva og Lilja, Guðrúnu og Sigrúnu 3 0 í hörkuleik.