Loka Grand Prix mótið í borðtennis 2015
Lokamót Grand Prix mótaraðar 2015 fór fram í dag sunnudaginn 29. mars
í TBR-Íþróttahúsinu við Gnoðarvog.
Keppt var í karla og kvennaflokkum þar sem 8 leikmenn léku í hvorum flokki.
Í undanúrslitum í karlaflokki sigraði Magnús K. Magnússon Víkingi Magnús Hjartarson
Víkingi 4 1 (5-11, 11-1, 11-1, 11-5. 11-2).
Í hinum undanúrslitaleiknum sigraði Daði Freyr Guðmundsson Víkingi Kára Mímisson KR
4 3 í hörkuleik (8-11, 4-11, 11-6, 3-11, 11-7, 12-10 og 11-9).
Úrslitaleikinn í karlaflokki léku því félagarnir frá Víkingi Magnús K. Magnússon gegn
Dað F. Guðmundssyni. Um hörku úrslitaleik var að ræða þar sem Magnús sigraði að
lokum 4 3 (11 9, 11 13, 11- 4, 11 8, 9 11, 9 11 og 11 9).
Í undanúrslitum í kvennaflokki sigraði Guðrún G Björnsdóttir KR Kolfinnu Bjarnadóttir HK
4 2 (11-9, 11-8, 11 9, 7-11, 9-11 og 11- 8).
Í hinum undanúrslitaleiknum sigraði Aldís Rún Lárusdóttir KR Sigrún E. Tómasdóttur KR
4 1 (11-7, 12-10, 8-11, 11-9 og 13-11).
Í kvennaflokki léku því til úrslita Aldís Rún Lárusdóttir KR gegn Guðrúnu G Björnsdóttur KR.
Leikar fóru þannig að Aldís sigraði 4 2 (11 9, 6-11, 11 7, 7 11, 11 8 og 11 8).