Lokamót unglingamótaraðarinnar verður haldið 6. apríl
Lokamót unglingamótaraðarinnar verður haldið í KR-heimilinu við Frostaskjól laugardaginn 6. apríl.
Átta stigahæstu leikmönnunum í hverjum flokki er boðið á lokamótið. Formaður mótanefndar sendi boðsbréf til félaga þeirra leikmanna sem hafa unnið sér inn keppnisrétt á lokamótinu þann 19.-20. mars og skulu leikmenn staðfesta þátttöku sínu með tölvupósti á netfangið [email protected] sem fyrst.
Keppni hefst kl. 13.