Lúkas komst í 16 manna úrslit og Guðbjörg Vala vann leik
Keppni í liðakeppni á Norður-Evrópumóti unglinga í Eistlandi lauk 27. júní. Drengja- og stúlknaliðin (U19) léku um 7. sæti. Bæði liðin töpuðu og höfnuðu því í 8. og neðsta sæti í sínum flokki.
Stúlknaliðið tapaði 1-3 gegn Eistland-1 og vann Guðbjörg Vala leikinn sem vannst. Hún tapaði hinum einliðaleiknum sínum 1-3.
Drengjaliðið tapaði 0-3 gegn Lettlandi og unnu Alexander og Kristján hvor sína lotuna.
Sveinaliðið (U15) hafði þegar lokið keppni í 11. og neðsta sæti.
Keppni í einliðaleik hófst um eftirmiddaginn 27. júní. Leikið var í 3-4 manna riðlum og síðan verður leikið upp úr riðlunum 28. júní. Tveir efstu í riðlunum leika um titilinn (þ.e. fara sigurvegaramegin í töfluna) en leikmenn í 3.-4. sæti í riðlunum leika um sæti 17 og neðar þ.e. fara tapmegin í töfluna).
Lúkas André Ólason hafnaði í 2. sæti í sínum riðli og komst áfram í 16 manna úrslit, einn íslensku leikmannanna. Hinir í íslenska hópnum geta hæst náð í 17. sæti í sínum flokki.
Úrslit úr leikjum íslensku leikmannanna:
U15 sveinar
Benedikt Darri Malmquist lék í D-riðli. Hann tapaði 0-3 fyrir leikmönnum frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen.
Lúkas André Ólason var í E-riðli og sigraði leikmann frá Eistlandi 3-0 og annan frá Lettlandi 3-2 en tapaði 2-3 fyrir Litháa, sem vann riðilinn. Hann varð því í 2. sæti í sínum riðli og komst áfram í 16 manna úrslit. Þar mætir hann Frank Josefsson frá Svíþjóð.
U19 stúlkur
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir dróst í G-riðil. Hún tapaði 1-3 fyrir norskri stúlku og 0-3 fyrir leikmönnum frá Eistlandi og Litháen.
Helena Árnadóttir dróst í D-riðil. Hún tapaði 1-3 fyrir leikmönnum frá Noregi og Svíþjóð og 0-3 fyrir stúlku frá Eistlandi.
Marta Dögg Stefánsdóttir lék í B-riðli, sem var þriggja manna riðill. Hún tapaði 0-3 fyrir stúlkum frá Eistlandi og Litháen.
Þórunn Erla Gunnarsdóttir var í E-riðli. Hún tapaði 0-3 fyrir leikmönnum frá Eistlandi, Litháen og Noregi.
U19 drengir
Alexander Chavdarov Ivanov keppti í F-riðli og tapaði 0-3 fyrir drengjum frá Eistlandi, Lettlandi og Svíþjóð.
Heiðar Leó Sölvason var í E-riðli og tapaði 0-3 fyrir leikmönnum frá Eistlandi, Finnlandi og Svíþjóð.
Kristján Ágúst Ármann dróst í B-riðil. Hann vann lotu gegn dreng frá Lettlandi en tapaði 0-3 fyrir leikmönnum frá Eistlandi og Litháen.
Viktor Daniel Pulgar keppti í G-riðli og tapaði 0-3 fyrir drengjum frá Eistlandi, Noregi og Svíþjóð.
Útsláttarkeppnin í einliðaleik hefst kl. 9 að staðartíma sunnudaginn 28. júní. Því miður lentu Kristján og Viktor saman í einliðaleik drengja, svo annar þeirra kemst í 8 manna úrslit tapmegin í töflunni. Aðrir úr íslenska hópnum frá erlenda andstæðinga í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.
Vefsíða mótsins: https://eltl.ee/voistlused/479/mangud
Forsíðumynd af Guðbjörgu Völu frá Íslandsmóti unglinga.


