Lúkas vann tvo einliðaleiki en liðsleikir töpuðust á NETU
Liðakeppnin hófst á Norður-Evrópumóti (NETU) unglinga í Eistlandi 26. júní. Leikið var í riðlum en liðakeppnin klárast laugardaginn 27. júní.
Líklega hefur verið dregið aftur í riðlana því andstæðingar Íslands eru ekki þeir sömu og kom fram í frétt frá 24. júní.
Úrslit úr leikjum íslensku liðanna:
U15 sveinar
Lettland-1 – Ísland 3-0. Lúkas tapaði sínum einliðaleik 2-3 og tvíliðaleikurinn tapaðist 1-3.
Litháen – Ísland 3-0. Benedikt Darri vann lotu í einliðaleik.
Svíþjóð-2 – Ísland. Strákarnir unnu eina lotu í tvíliðaleik.
Ísland lenti í 4. og neðsta sæti í B-riðli en síðan var spilað upp úr riðlunum:
Eistland-2 – Ísland 3-2. Lúkas vann báða einliðaleiki sína, þann fyrri 3-0 en þann seinni 3-2. Tvíliðaleikurinn tapaðist í oddalotu.
Lið Íslands virðist ekki fá andstæðing í síðustu umferðinni, sem fer fram 27. júní og hafnar því í 11. og neðsta sæti í flokknum.
U19 stúlkur
Litháen 1 – Ísland 3-0.
Eistland-2 – Ísland 3-0. Ein lota vannst en hana vann Helena.
Svíþjóð – Ísland 3-0. Helena og Þórunn unnu hvor sína lotuna.
Lið Íslands lenti í 4. og neðsta sæti í A-riðli en síðan var spilað upp úr riðlunum um sæti 5-8:
Litháen-2 – Ísland 3-0. Helena tapaði sínum einliðaleik 8-11 í oddalotu.
Ísland mætir Eistlandi-1 í leik um 7. sætið kl. 11.30 að staðartíma laugardaginn 27. júní.
U19 drengir
Eistland-2 – Ísland 3-0. Ein lota vannst en hana vann Alexander.
Noregur – Ísland 3-0. Kristján vann eina lotu í einliðaleik.
Litháen – Ísland 3-0.
Lið Íslands lenti í 4. og neðsta sæti í A-riðli en síðan var spilað upp úr riðlunum um sæti 5-8:
Finnland – Ísland 1-3. Finnarnir voru aðeins tveir í leiknum og því fékk Ísland gefins sigur í einum leik.
Ísland mætir Lettandi í leik um 7. sætið kl. 11.30 að staðartíma laugardaginn 27. júní.
Keppni í einliðaleik hefst kl. 15 að staðartíma 27. júní.
Vefsíða mótsins: https://eltl.ee/voistlused/479/mangud
Forsíðumynd af Lúkasi frá Íslandsmóti unglinga.
Uppfært 27.6. með upplýsingum um leikmanninn sem vann lotuna gegn Litháen í U15 flokki sveina.


