Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Magnús Gauti og BH tilnefnd sem íþróttamaður og lið Hafnarfjarðar

Magnús Gauti Úlfarsson, BH, var einn þeirra íþróttamanna sem var tilnefndur sem íþróttamaður Hafnarfjarðar 2023. Borðtennislið BH var eitt þriggja liða sem var tilnefnt sem lið Hafnarfjarðar 2023.
Verðlaunaafhendingin fór fram 27. desember sl.
Magnús Gauti mátti lúta í lægra haldi fyrir Antoni Sveini McKee, sundmanni, sem var valinn íþróttamaður Hafnarfjarðar.
Frjálsíþróttalið FH var valið sem lið Hafnarfjarðar.

Aðrar fréttir