Magnús Gauti og Nevena unnu Stórmót HK og Stiga
Stórmót HK og Stiga fór fram í dag í Snælandsskóla. Alls voru 31 skráðir í karlaflokki og 5 í kvennaflokki. Mótið var vel heppnað þar sem margir af bestu borðtennisspilurum landsins tóku þátt. Pingpong.is veitti vegleg verðlun með STIGA vörum.
Magnús Gauti vann karlaflokkinn eftir sigur á nafna sínum Magnúsi Jóhanni en alls voru 31 keppendur í karlaflokki. Úrslit voru eftirfarandi:
- Magnús Gauti Úlfarsson
- Magnús Jóhann Hjartarson
- – 4. Pétur Gunnarsson og Ellert Kristján Georgsson
Í kvennaflokki sigraði Nevena eftir sigur á Aldísi. Alls tóku fimm keppendur þátt í kvennaflokki. Úrslit voru eftirfarandi:
- Nevena Tasic
- Aldís Rún Lárusdóttir
- Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir
- Anna Sigurbjörnsdóttir