Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Magnús Gauti sigraði á Stórmóti HK

Magnús Gauti Úlfarsson, BH, sigraði í karlaflokki á Stórmóti HK, sem fram fór í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi. Magnús Gauti sigraði Kristján Ágúst Ármann, BH 4-0 (12-10, 11-4, 11-7, 11-6) í úrslitaleiknum.

Í undanúrslitum sigraði Magnús Gauti Eirík Loga Gunnarsson, KR 4-3 en Kristján lagði Darian Adam Róbertsson Kinghorn, HK, 4-1.

Keppendur voru 20 talsins. Engir keppendur voru skráðir í kvennaflokki og féll keppni því niður í flokknum.

Úrslit úr öllum leikjum má sjá á vef Tournament Software, https://www.tournamentsoftware.com/tournament/D0277672-6565-446F-A567-92EE4F3E8966.

Forsíðumynd frá Borðtennisdeild HK. Eirík Loga Gunnarsson vantar á myndina af verðlaunahöfum.

Aðrar fréttir