Magnús Hjartarson keppti í Þýskalandi
Landsliðsmaðurinn Magnús Jóhann Hjartarson frá Víkingi keppti síðustu helgi á mótinu Zwei Burger Turnier í Weinheim í Þýskalandi.
Magnús sigraði flokkinn herrer B og komst upp úr riðli sínum í Herrer A en tapaði 11-8 í oddalotu í 16-manna úrslitum fyrir egypskum leikmanni. Þá komst Magnús í 16-liða úrslit með félaga sínum í tvíliðaleik en í þeim leik töpuðu þeir þar fyrir hæst rankaða parinu, sem vann mótið.