Magnús Jóhann og Guðrún sigruðu á Grand Prix móti Víkings og Coca-Cola
Grand Prix Coca Cola mótið í borðtennis fór fram í TBR-Íþróttahúsinu um helgina 21-22 febrúar 2016. Keppendur komu félögunum Víkingi, BH, KR.
Í opnum flokki karla lék Magnús Hjartarson Víkingi úrslitaleik gegn Magnúsi Gauta Úlfarssyni BH. Magnús Hjartarson sigraði nokkuð örugglega 4 – 1 (4-11, 11-5, 11-5, 11-8 og 11-6).
Í opnum flokki kvenna lék Guðrún G Björnsdóttir KR úrslitaleik gegn Aldísi Rún Lárusdóttur KR. Guðrún sigraði örugglega 4 – 0 (11-5, 11-7, 11-2 og 11-7).
Í B-keppni léku Ellert Georgsson KR og Sigurður Herlufsen Víkingi úrslitaleikinn. Leikar fóru þannig að Ellert sigraði 4 – 1 (9-11, 11-6, 16-14, 11-6 og 11-3.
Úrslit í mótinu voru eftirfarandi:
Opinn flokkur karla:
- Magnús Hjartarson Víkingur
- Magnús Gauti Úlfarsson BH
3-4. Ingi Darvis Víkingur
3-4. Davíð Teitsson Víkingur
Opinn flokkur kvenna:
- Guðrún G Björnsdóttir KR
- Aldís Rún Lárusdóttir KR
3-4. Stella Kristjándóttir Víkingur
3-4. Þórunn Árnadóttir Víkingur
Opinn fl. kvenna
f.v. Stella,Þórunn, Guðrún og Aldís
B flokkur
f.v. Sigurður, Ellert og Karitas
Úrslit í B keppni:
- Ellert Georgsson KR
- Sigurður Herlufsen Víkingur
3-4. Karitas Ármannsdóttir KR
3-4. Kristján Gunnarsson BH
Á forsíðunni má sjá verðlaunahafa í opnum flokki karla, f.v. Magnús Gauti, Magnús Hjartarson, Ingi Darvis og Davíð Teitsson.
ÁMU (frétt frá Borðtennisdeild Víkings)