Matthías hefur lokið keppni á EM U21 árs
Matthías Þór Sandholt keppti í tvíliðaleik og tvenndarleik á EM U21 árs í Bratislava í dag, 8. maí.
Matthías lék tvenndarleik með Anjali Singh frá Írlandi og mættu þau Alexandros Madesis og Malamatenia Papadimitriou frá Grikklandi. Grikkirnir unnu leikinn 3-1.
Í tvíliðaleik lék Matthías með Lassi Lehtola frá Finnlandi. Þeir töpuðu gegn Leon Benko og Ivan Hencl frá Króatíu 0-3 í þremur jöfnum lotum.
Í báðum greinum er keppt með útsláttarfyrirkomulagi og Matthías hefur því lokið keppni á mótinu.
Hér má fylgjast með úrslitum frá mótinu: https://www.ettu.org/european-under-21-championships/
Forsíðumynd af Matthíasi úr myndasafni.