Matthías og Guðbjörg Vala á verðlaunapalli á Safir í Svíþjóð
Safir International mótið fór fram í Svíþjóð 20.-22. febrúar. Nokkrir íslenskir leikmenn tóku þátt í mótinu, þau Eiríkur Logi Gunnarsson, Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Helena Árnadóttir, Ingi Darvis Rodriguez, Matthías Þór Sandholt og Sól Kristínardóttir Mixa.
Þá var Sindre Åteigen, landsliðsþjálfari, staddur á mótinu með norska klúbbnum sem hann þjálfar og fylgdist með íslensku keppendunum.
Matthías Þór Sandholt varð í 2. sæti í flokknum Junior boys singles 23. Auk þess vann Matthías sinn riðil í Men’s singles elite flokki og varð í 33.-64. sæti í útsláttarkeppninni.
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir varð í 3.-4 sæti í flokki Girls singles 15. Guðbjörg Vala keppti í mörgum öðrum flokkum og komst í útsláttarkeppnina í þremur flokkum til viðbótar. Hún varð í 9.-16. sæti í flokki Junior Girls singles 23 og í 33.-34. sæti í flokki Girls singles 16. Í flokki Junior Girls singles 18 endaði Guðbjörg Vala í 17.-32. sæti eftir tap í oddalotu gegn stúlkunni sem varð í 3.-4. sæti.
Ingi Darvis Rodriguez varð í 9.-16. sæti í flokknum Junior boys singles 23. Þá hafnaði hann í 17.-32. sæti í Men’s singles elite flokki, sem er sterkasti karlaflokkurinn á mótinu.
Sól Kristínardóttir Mixa varð í 9.-16. sæti í flokki Junior Girls singles 23.
Helena Árnadóttir hafnaði í 17.-32. sæti í flokkum Girls singles 15, Girls singles 16 og Junior Girls singles 23.
Eiríkur Logi Gunnarsson komst ekki upp úr riðli í þeim flokkum sem han keppti í.
Hér má sjá úrslit út öllum leikjum á mótinu: https://resultat.ondata.se/001314/
Forsíðumynd af Matthíasi úr myndasafni.


