Matthías sigraði á topp 8 einliðaleiksmótinu
Matthías Þór Sandholt sigraði á topp 8 einliðaleiksmótinu, sem fram fór 5.-6. september. Átta af efstu leikmönnunum á styrkleikalistanum var boðin þátttaka á mótinu, þar sem þeir léku innbyrðis um þátttöku á Evrópumeistaramótinu og Norður-Evrópumótinu í haust.
Matthías, Birgir Ívarsson og Magnús Gauti Úlfarsson luku allir keppni með 12 stig, þ.e. sex sigra og eitt tap, þar sem þeir unnu hvern annan í hring. Matthías var með hagstæðasta hlutfall unninna og tapaðra lotna, og sigrar því á mótinu. Birgir varð annar og Magnús Gauti þriðji.
Matthías keppir því á Evrópumeistaramótinu í einstaklingsgreinum með Inga Darvis Rodriguez, sem þegar hafði verið valinn til þátttöku.
Allir þrír taka þátt í Norður-Evrópumótinu ásamt Inga Darvis.
Davíð Jónsson hafnaði í 4. sæti með 8 stig. Pétur Gunnarsson og Magnús Jóhann Hjartarson fengu 4 stig og Óskar Agnarsson og Eiríkur Logi Gunnarsson 2 stig.
Hér má sjá lokastöðuna á mótinu: https://www.tournamentsoftware.com/tournament/EDF43E9F-78EA-4A08-B13C-14E7BC21CD80/draw/1
Forsíðumyndin af efstu þremur leikmönnunum kemur frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.


