Matthías vann eina leik dagsins á EM í Slóveníu
Íslensku keppendurnir hófu keppni á EM í Ljubljana sunnudaginn 11. október. Þau léku öll einn leik í riðlakeppni í einliðaleik og í útsláttarkeppni í tvíliðaleik og tvenndarleik.
Eina leikinn sem íslenskir leikmenn unnu í dag var sigur Matthíasar Þórs Sandholt og Hönnuh Silcock frá Jersey í tvenndarleik. Þau sigruðu skoskt par í 1. umferð, þ.e. í 64 manna úrslitum. Þau féllu síðan úr leik í 2. umferð með 1-3 tapi gegn pari frá Eistlandi.
Hægt er að horfa beint á leiki á mótinu á vef ETTU og eru sýndir leikir beint á borðum 1-8: https://www.youtube.com/@ettutvofficial
Úrslit 11. október:
Tvenndarleikur:
Matthías/Silcock, Jersey – Johnson/Khalid, Skotlandi 3-2
Matthías/Silcock, Jersey – Moos/Avameri, Eistlandi 1-3
Ingi Darvis/Sól – Monteiro/Leal, Portúgal 0-3
Einliðaleikur kvenna:
Sól – Labosova, Slóvakíu 0-3
Einliðaleikur karla:
Matthías – Sisanovas, Litháen 1-3
Ingi Darvis – Ocal, Tyrklandi – 2-3
Tvíliðaleikur kvenna:
Sól/Stasevska, Lettlandi – Hashani/Uce-Nikolov, Kosóvo/Norður-Makedóníu 1-3
Tvíliðaleikur karla:
Matthías/Lehtola, Finnlandi – Wang, Slóvakíu/Gionis, Grikklandi 0-3
Ingi Darvis/Sisanovas, Litháen – Dilas/Levajac, Serbíu 0-3
Þessir leikir eru á dagskrá 12. október.
Uppgefinn tími er staðartími, sem er tveimur tímum á undan tíma á Íslandi:
kl. 09.35 Einliðaleikur karla (12. riðill): Matthías – Andras, Ungverjalandi – borð 4
kl. 10.10 Einliðaleikur karla (21. riðill): Ingi Darvis -Abiodun, Portúgal – borð 5
kl. 14.30 Einliðaleikur kvenna (30. riðill): Sól – Stoffregen, Danmörku – borð 2
Úrslit frá mótinu á vef ETTU: https://www.ettu.tv/events/167/4/1/5/5
Forsíðumynd af Matthíasi og Hönnu Silcock frá Jersey.


