Matthías vann leik á EM U21 árs og leikur í beinni kl. 16.40
Matthías Þór Sandholt sigraði Vit Kadlec frá Tékklandi 3-1 í einliðaleik karla undir 21 árs, á Evrópumótinu í Rúmeníu í dag. Þetta er jafnframt fyrsti sigur hans á þessu móti, en í fyrra tapaði hann öllum leikjum sínum.
Lokaleikur Matthíasar í 5. riðli, gegn Yoan Velichkov frá Búlgaríu verður sýndur í beinni útsendingu á vef ETTU kl. 16.40 í dag. Slóðin er https://www.ettu.tv/live/1/2066. Velichkov er efstur í riðlinum, hefur unnið báða leiki sína 3-2.
Matthías tapaði fyrsta leiknum, gegn Eitey Sushan frá Ísrael í 1. umferð.
Forsíðumynd af Matthíasi frá Sindre Åteigen.


