Michał May-Majewski er borðtennismaður maímánaðar
Borðtennismaður maímánaðar 2026 er Michał May-Majewski, leikmaður BR, Borðtennisfélags Reykjanesbæjar. Fulltrúi bordtennis.is mætti á Íslandsmöt öldunga 2026 í íþróttahúsi Hagaskóla og ræddi við Michał um upphafið í Keflavík, tilraunir með mismunandi spilastíla, æfingaferðir til Póllands og að borðtennis sé íþrótt fyrir alla aldurshópa.
Hvar, hvenær og hjá hverjum byrjaðirðu að æfa borðtennis?
„Ég byrjaði að spila borðtennis svona 2019 eða 2020 með vinum mínum í Keflavík. Við vorum með herbergi í kaþólsku kirkjunni þar sem presturinn leyfði okkur að spila okkur til skemmtunar. Það fjölgaði stöðugt í hópnum og við spiluðum bara þar okkur til gamans.“ Um þetta skemmtilega upphaf hefur Vísir fjallað áður.
Eftir um það bil ár kviknaði löngunin til að taka næsta skref. Þá höfðu Michał og félagar samband við Bjarna, þjálfara hjá HK, og spurðu hvort þeir gætu komið inn í félag og byrjað að æfa af meiri alvöru. Úr því varð síðan til uppbygging borðtennisstarfs í Reykjanesbæ og Michał æfir nú hjá BR, Borðtennisfélagi Reykjanesbæjar – sem hefur glæsilega æfingaaðstöðu í gömlu slökkviliðsstöðinni við Hringbraut þar í bæ.
Hvaða gúmmí notarðu?
„Mér finnst gaman að skipta um gúmmí, því fyrst vissi ég ekki alveg hvaða stíl ég vildi spila. Í byrjun spilaði ég með venjulegt sóknargúmmí. Eftir það prófaði ég líka anti-spin gúmmí.“ Í dag spilar Michał með venjulegt gúmmí í forhöndinni og varnargúmmí í bakhöndinni. Hann segir að sá stíll henti sér best, enda sé hann farinn að þróa sig meira í átt að varnarsinnaðri borðtennis.
Í tilnefningum sem Michał hafði fengið til nafnbótarinnar borðtennismaður mánaðarins kom einmitt fram að hann væri sjálflærður varnarspilari – og er það álit margra borðtennisleikmanna að varnarstíllinn hans sé mikilvæg viðbót við keppnisflóruna hérlendis, sem er aðallega sóknarmiðuð.
Ertu með einhverja hjátrú eða sérstakar hefðir fyrir leiki?
„Nei, engar svona alvöru. Ekki beint.“
Hver er uppáhalds sigurinn þinn eða eftirminnilegasti leikurinn?
„Ég held að það sé úrslitaleikurinn í 2. flokki karla árið 2022. Ég man ekki alveg nákvæmlega, en ég spilaði þá í úrslitum. Kannski tapaði ég meira að segja leiknum, en að vera kominn í úrslit var mjög stórt fyrir mig. Þetta er leikur sem ég man vel.“ Hér vísar Michał til úrslitaleiksins á Íslandsmótinu 2026 í Hafnarfirði, en hann náði alla leið í úrslitin þrátt fyrir að fjórtán keppendur í flokkinum væru stigahærri en hann.
Gaman er að geta þess að örfáum klukkustundum eftir að viðtal þetta var tekið vann Michał sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í borðtennis – tvíliðaleik í flokki 40-49 ára á Íslandsmóti öldunga með félaga sínum Piotr Herman úr BR.
Áttu erlenda borðtennisfyrirmynd?
„Já, núna finnst mér mjög gaman að horfa á Panagiotis Gionis. Svo horfi ég líka á Ruwen Filus, því ég er að byrja að spila meiri varnarstíl. Þess vegna finnst mér mest spennandi að fylgjast með leikmönnum sem spila vörn.“
Er einhver leikmaður eða þjálfari sem hefur haft mikil áhrif á þig?
„Hér á Íslandi hef ég eiginlega þurft að vera svolítið minn eigin þjálfari. En í hverju sumarfríi fer ég til Póllands á atvinnumannaborðtennisbúðir. Þar er ég í tíu daga og æfi með atvinnumönnum og atvinnuþjálfurum. Ég hef lært mjög mikið á þessum æfingabúðum í Póllandi.“
Af hverju er borðtennis besta íþróttin?
„Fyrir mig er borðtennis besta íþróttin af því að hún heldur mér í góðu formi. Hún er ekki auðveld, en þegar maður byrjar að spila finnur maður fyrir árangri og langar alltaf að gera meira. Og fyrir aðra er þetta líka frábært, því það geta allir spilað borðtennis. Þú getur spilað þegar þú ert ungur og þú getur spilað þegar þú ert eldri. Þetta er íþrótt fyrir alla.“ Þetta getur Michał með sanni sagt, því Karolina eiginkona hans og tveir af þremur sonum hans, Dawid og Krystian, hafa spilað íþróttina með góðum árangri undanfarin ár.
Og með þeim ágætu lokaorðum kveðjum við Michał.
Lesendurg eru jafnframt hvattir til að halda áfram að senda inn tilnefningar, til að styðja við góða umfjöllun árið 2026.


