Misjafnt gengi hjá Kára hjá Horreds í Svíþjóð
Kári Mímisson, borðtennismaður úr KR, leikur jafnframt með liði Horreds í sænsku 3. deildarkeppninni. Kári hefur farið tvisvar út um helgi og leikið með liðinu á þessu ári en hefur gengið upp og niður að eigin sögn.
Liðið á þó enn möguleika á að fara upp um deild því eins og staðan er núna er liðið næstum öruggt með 2. sæti. Það gefur rétt á umspili við tvö önnur lið um sæti í 2. deildinni. Horreds á enn möguleika á efsta sætinu í deildinni en það ræðst af þeim leikjum sem eftir eru.
ÁMU