Mjög góð þáttaka í æfingabúðum stúlkna á Hvolsvelli
Mjög góð þáttaka var í æfingabúðum stúlkna á Hvolsvelli, sem haldnar voru um síðustu helgi. Alls mættu 23 stúlkur í búðirnar frá fjórum félögum, BH, Dímon, KR og Víkingi. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir og Eyrún Elíasdóttir skipulögðu æfingabúðirnar en auk þeirra voru Ársól Arnardóttir og Tómas Ingi Shelton þjálfarar í búðunum.
Verið er að athuga hvort hægt verði að halda sambærilegar æfingabúðir fyrir drengi seinna á keppnistímabilinu.
Mynd af þátttakendum frá Auði Tinnu.
ÁMU