Nevena og Magnús Kristinn sigruðu á Pepsi Grand Prix móti Víkings
Pepsi Grand Prix mótið í borðtennis fór fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 8. desember 2018. Mótið var mjög vel sótt þar sem keppendur komu frá Víkingi, BH, KR, HK og Akri.
Í opnum flokki karla lék Magnús K. Magússon úrslitaleik við félaga sinn úr Víkingi, Magnús Hjartarson. Um hörkuleik var að ræða þar sem Magnús K. Magnússon sigraði að lokum 4-3 (9-11, 11-1, 11-9, 12-14, 8-11, 11-7 og 11-7).
Í opnum flokki kvenna lék Nevena Tasic Víkingi úrslitaleik gegn Agnesi Brynjarsdóttur Víkingi, sem er aðeins 12 ára. Leikar fóru þannig að Nevena sigraði nokkuð örugglega 4-0 (11-5, 11-8, 11-9 og 11-7).
Opinn flokkur karla:
1. Magnús K. Magnússon Víkingur
2. Magnús Hjartarson Víkingur
3-4. Faber Pennings KR
3-4. Jóhannes B. Tómasson BH
Sjá mynd á forsíðu.
f.v.: Stella, Nevena og Agnes.
Opinn flokkur kvenna:
1. Nevena Tasic Víkingur
2. Agnes Brynjarsdóttir Víkingur
3-4. Stella Kristjánsdóttir Víkingur
3-4. Sól Mixa BH
B flokkur karla:
1. Örn Þórðarson HK
2. Mathiss Meckl Akur
3-4. Guðmundur Ragnar Guðmundsson Víkingur
3-4. Magnús Kristinsson Víkingur
B flokkur kvenna:
1. Kristín Magnúsdóttir KR
2. Þórunn Ásta Árnadóttir Víkingur
3-4. Þuríður Þöll Magnúsdóttir KR
3-4. Lára Ívarsdóttir KR
ÁMU – frétt frá Borðtennisdeild Víkings