Norbert sigraði á Móti meistaranna
Norbert Bedo, KR, sigraði á sk. Móti meistaranna, sem var boðsmót á vegum Borðtennisdeildar BH, haldið í Íþróttahúsinu við Strandgötu þann 19. apríl.
Norbert sigraði Pétur Gunnarsson, KR, 3-1, í úrslitaleiknum. Gestur Gunnarsson, KR, varð í 3. sæti eftir sigur á Jóhannesi Bjarka Urbancic Tómassyni, BH, en leiknum lauk 11-9 í oddalotu.
Leikið var í tveimur fimm manna riðlum, og svo leikið um sæti 1 til 10.
Úrslit úr öllum leikjum má sjá á vef Tournament Software, https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament?id=EAD77FD6-65F9-4944-8119-98FC38165C48
Á forsíðunni má sjá Norbert og Gest, á mynd úr safni.