Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Óformlegt aldursflokkamót 12. nóvember

Mattia Contu, unglingalandsliðsþjálfari býður til opins móts fyrir unga leikmenn í Íþróttahúsi Hagaskóla, Neshaga 3, sunnudaginn 12. nóvember kl. 9.30. Húsið opnar kl. 9. Gert er ráð fyrir matarhléi á tímabilinu 12.30-13.30 og að mótinu ljúki um kl. 16.30.
Miðað er við að leikmenn séu ekki eldri en 19 ára.

Á mótinu fá ungir leikmenn tækifæri til að spila marga leiki og verður fyrirkomulagið það sama og á fyrri mótum í september og október. Á þennan hátt fá leikmenn meiri keppnisreynslu um leið og þeir kynnast leikmönnum úr öðrum félögum og njóta samvista við þá.
Mótið gildir ekki til stiga á styrkleikalista.

Þátttökugjald er kr. 1000.

Keppendur þurfa að skrá sig á netfangið [email protected]. Skráningu þarf að fylgja fullt nafn, fæðingardagur og félag sem leikmaðurinn spilar fyrir. Vinsamlegast setjið OPEN TOURNAMENT NOVEMBER í efnislínuna í póstinum.

Skráningarfrestur er til kl. 21 föstudaginn 10. nóvember.

Forsíðumynd tekin af fésbókarsíðu BTÍ, tekin af Finni Hrafni Jónssyni.

Aðrar fréttir