Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ólafur Elí tilnefndur sem íþróttaeldhugi ársins

Ólafur Elí Magnússon hjá Dímon, er einn þriggja sem er tilnefndur sem íþróttaeldhugi ársins af valnefnd á vegum ÍSÍ.

Eins og borðtennisfólki er kunnugt hefur Ólafur Elí lengi verið helsti drifkrafturinn í starfi Dímonar í borðtennis, auk þess sem hann hefur starfað að uppbyggingu fleiri íþróttagreina hjá Dímon.

Tilkynnt verður um hver þeirra þriggja sem voru tilnefnd hlýtur titilinn um leið og kjöri íþróttamanns ársins verður lýst þann 4. janúar nk.

Sjá frétt á vef RÚV, https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2023-12-29-thrju-tilnefnd-sem-ithrottaeldhugar-arsins-400878

Mynd af Ólafi Elí fengin af vefnum www.hvolsvollur.is

Aðrar fréttir