Opnar æfingabúðir fyrir stelpur á Hvolsvelli
Helgina 7.-8. janúar 2017 munu Auður Tinna Aðalbjarnardóttir (KR) og Eyrún Elíasdóttir (Víkingi) standa fyrir æfingabúðum fyrir borðtennisstelpur á Hvolsvelli. Aðstoðarþjálfari með kúluæfingar verður Tómas Ingi Shelton (BH).
Stúlkum úr öllum félögum býðst að taka þátt og er vonast eftir sem fjölbreyttustum æfingahópi.
Dagskráin byggist aðallega á þremur æfingum og æfingamóti eins og á sambærilegum æfingabúðum undanfarin ár. Á milli æfinga verður farið í sund í sundlauginni á Hvolsvelli, borðuð pizza í söluskálanum Björkin og margt annað skemmtilegt.
Gist verður í félagsmiðsöðinni á Hvolsvelli og því nauðsynlegt að taka með vindsæng/dýnu og svefnpoka.
Verð fyrir æfingabúðirnar eru 8.500 kr sem greiðast við brottför. Innifalið í því er allt uppihald, að undanskilnu því ef stelpurnar vilja kaupa eitthvað aukalega (eins og bland í poka á laugardagskvöldinu). Möguleiki er fyrir hendi að foreldrar komi með sé áhugi fyrir því.
Farið verður með strætó frá Mjódd á Hvolsvöll. Farið kostar 8 miða á Hvolsvöll og 8 miða til baka og hægt er að kaupa miðana í Mjódd frá kl. 10:00 daginn sem við förum. Strætómiðarnir eru ekki innifalnir í verðinu fyrir æfingabúðirnar. 20 miða spjald fyrir 6-11 ára kostar 1.300 kr og sami fjöldi fyrir 12-17 ára kostar 3.000 kr.
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Laugardagur:
11:00 Mæting í strætómiðstöðina í Mjódd
11:30 Strætó nr. 51 fer af stað
13:07 Strætó kemur á Hvolsvöll, stutt hádegishressing
13:30-15:00 1. æfing
15:00-17:00 Sund og hressing
17:00-18:30 2. æfing
19:00-20:00 Pizzuveisla (hlaðborð)
20:00-22:00 Frjáls tími, spilakvöld og leikir
22:30 Svefntími
Sunnudagur:
09:30 Morgunmatur
10:00-11:30 3. æfing
11:30-12:00 Hádegismatur
12:00-14:00 Æfingamót
15:09 Brottför frá Hvolsvelli með strætó nr. 52
16:57 Strætó kemur í Mjódd
Opnað hefur verið fyrir skráningar hjá Auði á netfangið [email protected] og skráningarfrestur er 4. janúar 2017. Vinsamlegast látið vita við skráningu ef einhverjar sérþarfir eru varðandi matarræði.