Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Opnar æfingabúðir fyrir stelpur á Hvolsvelli

Helgina 7.-8. janúar 2017 munu Auður Tinna Aðalbjarnardóttir (KR) og Eyrún Elíasdóttir (Víkingi) standa fyrir æfingabúðum fyrir borðtennisstelpur á Hvolsvelli. Aðstoðarþjálfari með kúluæfingar verður Tómas Ingi Shelton (BH).

Stúlkum úr öllum félögum býðst að taka þátt og er vonast eftir sem fjölbreyttustum æfingahópi.

Dagskráin byggist aðallega á þremur æfingum og æfingamóti eins og á sambærilegum æfingabúðum undanfarin ár. Á milli æfinga verður farið í sund í sundlauginni á Hvolsvelli, borðuð pizza í söluskálanum Björkin og margt annað skemmtilegt.

Gist verður í félagsmiðsöðinni á Hvolsvelli og því nauðsynlegt að taka með vindsæng/dýnu og svefnpoka.

Verð fyrir æfingabúðirnar eru 8.500 kr sem greiðast við brottför. Innifalið í því er allt uppihald, að undanskilnu því ef stelpurnar vilja kaupa eitthvað aukalega (eins og bland í poka á laugardagskvöldinu). Möguleiki er fyrir hendi að foreldrar komi með sé áhugi fyrir því.

Farið verður með strætó frá Mjódd á Hvolsvöll. Farið kostar 8 miða á Hvolsvöll og 8 miða til baka og hægt er að kaupa miðana í Mjódd frá kl. 10:00 daginn sem við förum. Strætómiðarnir eru ekki innifalnir í verðinu fyrir æfingabúðirnar. 20 miða spjald fyrir 6-11 ára kostar 1.300 kr og sami fjöldi fyrir 12-17 ára kostar 3.000 kr.

Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:

Laugardagur:

11:00               Mæting í strætómiðstöðina í Mjódd

11:30               Strætó nr. 51 fer af stað

13:07               Strætó kemur á Hvolsvöll, stutt hádegishressing

13:30-15:00   1. æfing

15:00-17:00   Sund og hressing

17:00-18:30   2. æfing

19:00-20:00   Pizzuveisla (hlaðborð)

20:00-22:00   Frjáls tími, spilakvöld og leikir

22:30               Svefntími

Sunnudagur:

09:30              Morgunmatur

10:00-11:30   3. æfing

11:30-12:00   Hádegismatur

12:00-14:00   Æfingamót

15:09              Brottför frá Hvolsvelli með strætó nr. 52

16:57              Strætó kemur í Mjódd

Opnað hefur verið fyrir skráningar hjá Auði á netfangið [email protected] og skráningarfrestur er 4. janúar 2017. Vinsamlegast látið vita við skráningu ef einhverjar sérþarfir eru varðandi matarræði.

Aðrar fréttir