Óskar vann Stórmót HK
Stórmót HK, sem er hluti af Lokamóti BTÍ, fór fram sunnudaginn 12. apríl í Snælandsskóla. Alls voru 32 keppendur skráðir til leiks og keppt var í 8 riðlum. Óskar Agnarsson úr HK stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa unnið Kristján Ágúst Ármann úr BH 4-1 (-3, 10, 10, 6, 6) í úrslitaleik.
Í undanúrslitum sigraði Óskar Eirík Loga Gunnarsson úr KR 4-0 og Kristján Ágúst vann Heiðar Leó Sölvason úr BH 4-1.
Lokaniðurstaðan var því:
1. Óskar
2. Kristján Ágúst
3.-4. Heiðar Leó og Eiríkur Logi
Kvennaflokkur féll niður vegna ónógrar þátttöku.
Öll úrslit má finna á Tournament Software.
Myndin er af Óskari, Kristjáni og Heiðari. Eirík Loga vantar á myndina.


