Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Pepsi Grand Prix mótið í borðtennis

Pepsi Grand Prix mótið í borðtennis fór fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 31. október 2015.  Keppt var í opnum flokkum karla og kvenna og var mótið  fjölmennt þar sem keppendur komu frá félögunum Víkingi, KR, og BH.

Í opnum flokk karla léku til úrslita félagarnir frá Víkingi Daði Freyr Guðmundsson og Magnús Hjartarson.  Leikar fóru þannig að Daði sigraði eftir skemmtilega leiki 4 – 2. (11 – 9, 11- 8, 8 – 11, 15 – 17, 11 – 5 og 11 – 7).

Í opnum flokki kvenna léku til úrslita Aldís Rún Lárusdóttir KR og Eyrún Elíasdóttir Víkingi.  Aldís sigraði eftir mikla baráttuleiki 4 – 2 (11 – 7, 9 -11, 5 – 11, 11 – 4, 11 – 7 og 12 – 10).

Í B. flokki karla léku úrslitaleikinn Ellert Georgsson KR og Guðmundur Ragnar Guðmundsson Víkingi.  Um hörku viðureign var að ræða þar sem Ellert sigraði að lokum 4 – 3 (9-11, 11 – 9, 4 – 11, 11 – 3, 13-11, 6-11 og 11-6).

Í B flokki kvenna léku úrslitaleikinn  Þórunn Árnadóttir Víkingi og Karitas Ármannsdóttir KR. Þórunn sigraði 4 – 1  (10-12, 12-7, 13-11, 11-5 og 11-4).

 

Úrslit í mótinu voru eftirfarandi:

Opinn flokkur karla:

  1. Daði Freyr Guðmundsson Víkingur
  2. Magnús Hjartarson Víkingur

3-4.   Arnór Gauti Helgason Víkingur

3-4.   Breki Þórðarson KR

 

Verðlaunahafar í opnum flokki kvenna á Grand Prix móti Víkings og Pepsi, 31.10.2015

Verðlaunahafar í opnum flokki kvenna, Eyrún, Aldís og Stella. Berglindi Ósk Sigurjónsdóttur vantar á myndina,

Opinn flokkur kvenna:

  1. Aldís Rún Lárusdóttir  KR
  2. Eyrún Elíasdóttir Víkingur

3-4.  Berglind Sigurjónsdóttir Víkingur

3-4.  Stella Kristjánsdóttir Víkingur

 

Verðlaunahafar í B-keppni karla

Verðlaunahafar í B-keppni karla, f.v. Kamil, Róbert, Ellert og Guðmundur.

B-keppni karla:

  1. Ellert Georgsson KR
  2. Guðmundur Ragnar Guðmundsson Víkingur

3-4.   Kamil Mocek Víkingur

3-4.  Róbert Barkarson Víkingur

 

Verðlaunahafar í B-keppni kvenna.

Verðlaunahafar í B-keppni kvenna, f.v. Karitas og Þórunn.

B-keppni kvenna:

  1. Þórunn Árnadóttir Víkingur
  2. Karitas Ármannsdóttir KR

 

Pétur Stephensen

 

Á forsíðu er mynd af verðlaunahöfum í opnum flokki karla, f.v. Magnús, Daði og Arnór Gauti. Breka Þórðarson vantar á myndina.

 

Aðrar fréttir