Pétur Gunnarsson og Kolfinna Bjarnadóttir hækkuðu mest á styrkleikalistanum á keppnistímabilinu
Pétur Gunnarsson hækkaði mest karla á styrkleikalistanum, hér á mynd Finns H. Jónssonar á EM unglinga 2013.
Pétur Gunnarsson úr KR hækkaði mest allra á styrkleikalistanum frá 1. júní 2013 til 1. júní 2014. Pétur bætti við sig 261 stigi á keppnistímabilinu.
Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir úr HK hækkaði mest allra kvenna á styrkleikalistanum á sama tíma. Hún bætti sig um 188 stig á keppnistímabilinu.
Yfirlit yfir alla leikmenn, sem léku á síðasta keppnistímabili og stöðu þeirra á styrkleikalista
1.6.2014 má sjá í meðfylgjandi skjölum:
ÁMU