Pétur Marteinn Tómasson þjálfar unglinga í Bólivíu
Pétur Marteinn Tómasson, borðtennismaður úr KR, hefur verið sjálfboðaliði hjá Alþjóðlegum ungmennaskiptum í La Paz í Bólivíu síðan í janúar. Þar hefur hann tekið við þjálfun unglinga í borðtennis og þjálfar nú börn og unglinga í 3-6 klst. á dag.
Pétur hefur einnig tekið þátt í borðtennismótum með ágætum árangri. Hann hefur leikið í 1. deild í La Paz, en í henni eru 8 leikmenn.
ÁMU
![](https://bordtennis.is/skjalasafn/myndir/p%C3%A9tur%20%C3%A1%20kjartansm%C3%B3ti%202011.jpg)
Mynd af Pétri frá Kjartansmótinu 2011: Finnur Hrafn Jónsson