Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Punktamót Dímonar 2017 – Sumardaginn fyrsta

Punktamót Dímonar verður haldið á sumardaginn fyrsta, 20. apríl 2017

í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Keppt verður í 2. flokki karla og kvenna.

Mótið hefst kl. 11.00 og er skráningargjald kr. 800,- á þátttakanda

  • 2.flokkur karla Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:20
  • 2.flokkur kvenna Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:20

 

Vinningar fyrir efsta sætið í hvorum flokki eru eftirfarandi:

  • Gjafabréf frá Lárusi í Miðhúsum uppá klst hestaferð um Njáluslóðir
  • Gjafabréf frá söluskálanum Björkin uppá 16´ pizzu og gos.
  • 10 miða sundkort í sundlaugina á Hvolsvelli

 

Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 19. apríl kl. 22:00 og skal skráningum skilað til [email protected] eða [email protected]

Leikið verður með hvítum STIGA*** kúlum á STIGA ELITE borðum.

Leiknar verða 3 -5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast

áfram, eftir það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi.

Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ.

Yfirdómari verður. Ólafur Elí Magnússon

Mótstjórn: Reynir Björgvinsson og Ásta Laufey Sigurðardóttir

Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags.

Aðrar fréttir