Reykjavíkurleikar í borðtennis 2018 – Reykjavík International Games 2018. Úrslit
Sigurvegarar mótsins Avi Rodgaard og Ivik Nielsen
Glæsilegu og vel heppnuðu borðtennismóti lokið
Borðtennismót Reykjavíkurleikana 2018 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal 27. janúar 2018 í umsjón Borðtennisdeildar Víkings. Keppt var í karla og kvennaflokki þar sem allt besta borðtennisfólk landsins lék ásamt gestum frá Svíþjóð, Grænlandi, og Póllandi.
Í karlaflokki lék í undanúrslitum Ivik Nielsen frá Grænlandi gegn Magnúsi Gauta Úlafarssyni BH. Leikar fóru þannig að Ivik Nielsen sigraði 4 – 1 í góðum leik (11-3, 8-11,13-11,11-5 og 11-9).
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Magnús Hjartarson Víkingi gegn Magnúsi K. Magnússini Víkingi. Leikar fóru þannig að Magnús Hjartarson sigraði eftir mjög spennandi hörkuleik 4 – 3 (11-7, 12-10, 3-11, 11-5, 13-15,
5-11 og 11-7).
Úrslitaleikinn léku því Grænlendingurinn Ivik Nielsen gegn Magnúsi Hjartarsyni Víkingi. Leikurinn var skemmtilegur og góður þar sem Grænlendingurinn Ivik Nielsen sigraði eftir skemmtilegan leik 4 – 1 (11,3, 8-11, 13-11, 11-5 og 11-9).
Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Avi Rodgaard Grænlandi gegn Aldísi Rún Lárusdóttur KR. Avi sigraði eftir mjög góðan og spennandi leik 4-3 (11-8, 5-11, 11-5, 8-11, 13-11, 5-11 og 11-6).
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Kolfinna Bjarnadóttir HK gegn Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur KR. Kolfinna
sigraði örugglega 4 – 0 (11-9, 11-4, 11-9, 11-8).
Úrslitaleikinn léku því Avi Rodgaard frá Grænlandi gegn Kolfinnu Bjarnadóttur HK. Leikar fóru þannig að Avi Rodgaard sigraði nokkuð örugglega 4 – 0 (11-9, 11-9, 11-6 og 11-6).
Úrslitin í mótinu voru þannig:
Einliðaleikur karla:
- Ivik Nielsen Grænlandi
- Magnús Hjartarson Víkingur
3-4. Magnús Gauti Úlfarsson BH
3-4. Magnús Kristinn Magnússon Víkingur
Einliðaleikur kvenna:
- Avi Rodgaard Grænlandi
- Kolfinna Bjarnadóttir HK
3-4. Aldís Rún Lárusdóttir KR
3-4. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir KR