Reykjavíkurleikarnir í borðtennis 2021 – RIG
Mjög vel heppnuðu borðtennismóti lokið.
Borðtennismóti Reykjavíkurleikana 2021 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal 30. janúar 2021 í umsjón Borðtennisdeildar Víkings. Keppt var í karla og kvennaflokki þar sem 23. leikmenn léku í karlaflokki og 10. leikmenn í kvennaflokki. Besta borðtennisfólk landsins mættu til leiks, en því miður komu ekki sterkir erlendir keppendur að þessu sinni vegna Covid ástands.
Í Karlaflokki léku í undanúrslitum Íslandsmeistarinn Ingi Darvis Víkingi gegn Birgir Ívarssyni BH, leikar fóru þannig að Ingi Darvis sigraði 4 – 0 (11-5, 11-2, 11-7 og 11-6).
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Magnús Gauti Úlafarsson BH gegn Magnúsi Hjartarsyni Víkingi, leikar fóru þannig að Magnús Gauti sigraði 4 – 0 (11-8, 11-6, 11-6 og 14-12).
Úrslitaleikinn léku því Ingi Darvis Víkingi gegn Magnúsi Gauta BH. Um hörkuleik og góðan úrslitaleik var að ræða þar sem Ingi Darvis sigraði 4 – 2 (11-7, 8-11, 11-6, 7-11, 11-4 og 11-7).
Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Nevena Tasic Víkingi gegn Þóru Þórisdóttir KR, þar sem Nevena sigraði 4 – 0 (11-1, 11-6, 11-3 og 11-3).
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Íslandsmeistarinn Agnes Brynjarsdóttir Víkingi gegn Stellu Karen Kristjánsdóttir Víkingi. Agnes sigraði 4 – 1 (11-7, 11-7, 11-7,4-11 og 11-8).
Úrslitaleikinn léku því Nevena Tasic Víkingi gegn Agnesi Brynjardóttir Víkingi. Leikar fóru þannig að Nevena sigraði 4 – 0 (13-11, 11-6, 11-5 og 11-8).
Úrslitin
í mótinu voru þannig:
Einliðaleikur karla:
1. Ingi Darvis Rodriguez Víkingur
2. Magnús Gauti Úlfarsson BH
3-4.
Magnús Hjartarson Víkingur
3-4. Birgir Ívarsson BH
Einliðaleikur kvenna:
1. Nevena Tasic Víkingur
2. Agnes Brynjarsdóttir Víkingur
3-4.
Þóra Þórisdóttir KR
3-4. Stella Karen Kristjándóttir Víkingur