Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Reykjavíkurleikarnir í borðtennis 2021 – RIG

Mjög vel heppnuðu borðtennismóti lokið.

Sigurvegarar mótsins Ingi Darvis Rodriguez og Nevena Tasic

Borðtennismóti Reykjavíkurleikana 2021 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal 30. janúar 2021 í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.  Keppt var í karla og kvennaflokki þar sem 23. leikmenn léku í karlaflokki og 10. leikmenn í kvennaflokki. Besta borðtennisfólk landsins mættu til leiks, en því miður komu ekki sterkir erlendir keppendur að þessu sinni vegna Covid ástands.  

Í Karlaflokki léku í undanúrslitum Íslandsmeistarinn  Ingi Darvis Víkingi gegn Birgir Ívarssyni BH, leikar fóru þannig að Ingi Darvis sigraði 4 – 0 (11-5, 11-2, 11-7 og 11-6).

Í hinum undanúrslitaleiknum lék Magnús Gauti Úlafarsson BH gegn Magnúsi Hjartarsyni Víkingi, leikar fóru þannig að Magnús Gauti sigraði 4 – 0 (11-8, 11-6, 11-6 og 14-12).

Úrslitaleikinn léku því Ingi Darvis Víkingi gegn Magnúsi Gauta BH.  Um hörkuleik og góðan úrslitaleik var að ræða þar sem Ingi Darvis sigraði 4 – 2 (11-7, 8-11, 11-6, 7-11, 11-4 og 11-7).

Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Nevena Tasic Víkingi gegn Þóru Þórisdóttir KR, þar sem Nevena sigraði 4 – 0 (11-1, 11-6, 11-3 og 11-3).

Í hinum undanúrslitaleiknum lék Íslandsmeistarinn Agnes Brynjarsdóttir Víkingi gegn Stellu Karen Kristjánsdóttir Víkingi.  Agnes sigraði 4 – 1 (11-7, 11-7, 11-7,4-11 og 11-8).

Úrslitaleikinn léku því Nevena Tasic Víkingi gegn Agnesi Brynjardóttir Víkingi.  Leikar fóru þannig að Nevena sigraði 4 – 0 (13-11, 11-6, 11-5 og 11-8).

Úrslitin
í mótinu voru þannig:

Einliðaleikur karla:

   1.  Ingi Darvis Rodriguez Víkingur

 
 2.  Magnús Gauti Úlfarsson BH

3-4.
 Magnús Hjartarson Víkingur

3-4.  Birgir Ívarsson BH

Einliðaleikur kvenna:

    1.  Nevena Tasic Víkingur

 
  2.  Agnes Brynjarsdóttir Víkingur

 3-4.
 Þóra Þórisdóttir KR

 3-4.  Stella Karen Kristjándóttir Víkingur  

Aðrar fréttir