Samherjar-A sigruðu Samherja-B í norðurriðli 2. deildar
A- og B-lið Samherja mættust í innbyrðis leik í 1. umferð í norðurriðli 2. deildar að Hrafnagili sunnudaginn 30. október. A-liðið sigraði 4-1.
Með B-liðinu lék Sölvi Sigurðarson, sem er líklega yngsti leikmaðurinn í deildarkeppninni í vetur. Sölva vantaði þrjá daga í sjö ára afmælið sitt á leikdag.
Samherjar-A – Samherjar-B 4-1
- Úlfur Hugi Sigmundsson – Trausti Freyr Sigurðsson 3-2
- Heiðmar Sigmarsson – Sölvi Sigurðarson 3-0
- Hildur Marín Gísladóttir – Ólafur Ingi Sigurðarson 1-3
- Heiðmar/Úlfur – Ólafur/Trausti 3-1
- Heiðmar Sigmarsson – Trausti Freyr Sigurðsson 3-0
Á forsíðumyndinni má sjá A-lið Samherja frá síðasta keppnistímabili með þjálfara sínum.
ÁMU