Samherjar-C og Æskan sigruðu í norðurriðli 2. deildar
C-lið Samherja sigraði A-lið Samherja 4-0 í leik, sem fram fór að Hrafnagili 20. nóvember sl. C-liðið hefur unnið báða leiki sína í riðlinum.
Æskan og A-lið Samherja mættust svo að Hrafnagili þann 6. desember. Æskan hafði sigur 4-2.
Úrslit úr einstökum leikjum
Samherjar-C – Samherjar-A 4-0
- Jóhannes Bjarki Sigurðsson – Hildur Marín Gísladóttir 3-0
- Tristan Ingvason – Heiðmar Sigmarsson 3-2
- Sigurður Eiríksson – Úlfur Hugi Sigmundsson 3-0
- Jóhannes/Sigurður – Heiðmar/Hildur 3-0
Samherjar-A – Æskan 2-4
- Úlfur Hugi Sigmundsson – Matthías Benjamínsson 3-0
- Heiðmar Sigmarsson – Ingvar Gylfason 3-1
- Hildur Marín Gísladóttir – Sævar Gylfason 0-3
- Heiðmar/Úlfur- Ingvar/Sævar 1-3
- Heiðmar Sigmarsson – Matthías Benjamínsson 2-3
- Úlfur Hugi Sigmundsson – Sævar Gylfason 1-3
Styrkleikalistinn fyrir 1. desember hefur verið uppfærður með úrslitum úr innbyrðis leik Samherjaliðanna.
Forsíðumynd af Jóhannesi og Sigurði úr Samherjum-C frá Starra Heiðmarssyni.
ÁMU