Seth Egenberg og Nevena Tasic sigruðu í borðtenniskeppni Reykjavíkurleikanna
Borðtennismót Reykjavíkurleikana 2019 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal 26. janúar 2019 í umsjón Borðtennisdeildar Víkings. Keppt var í karla og kvennaflokki þar sem allt besta borðtennisfólk landsins lék ásamt góðum gestum frá Noregi, Rúmeníu, Serbíu og Litháen.
Í karlaflokki léku í undanúrslitum Seth Egenberg frá Noregi gegn Magnúsi Gauta Úlfarssyni BH. Leikar fóru þannig að Seth Egenberg sigraði 4 – 3 í mjög spennandi og góðum leik (11-6, 9-11, 14-12, 7-11, 7-11, 12-10 og 11-5).
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Magnús K. Magnússon Víkingi gegn Inga Darvis Rodriguez Víkingi. Leikar fóru þannig að Magnús sigraði eftir mjög spennandi hörkuleik 4 – 3 (5-11, 12-10, 11-9, 11-1, 7-11, 13-15 og 11-7).
Úrslitaleikinn léku því Norðmaðurinn Seth Egenberg gegn Magnúsi K. Magnússyni Víkingi. Leikurinn var skemmtilegur og góður þar sem Seth Egenberg sigraði 4 – 2 (11-6, 5-11, 7-11, 11-7, 11-8 og 11-9).
Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Victoria Eilertsen Noregi gegn Stellu Karen Kristjánsdóttur Víkingi. Victoria sigraði nokkuð örugglega 4 – 0 (11-5, 11-5, 15-13 og 11-4).
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Nevena Tasic Víkingi gegn Aldísi Rún Lárusdóttur KR. Nevena sigraði nokkuð örugglega 4 – 1 (11-5, 5-11, 11-8, 11-7, og 11-9).
Úrslitaleikinn léku því Nevena Tasic Víkingi gegn Victoria Eilertsen frá Noregi. Leikar fóru þannig að Nevena sigraði eftir mjög góðan og spennandi úrslitaleik 4 – 3 (11-4, 11-5, 7-11, 9-11, 11-6, 12-14 og 11-7).
Úrslitin í mótinu voru þannig:
Einliðaleikur karla:
1. Seth Egenberg Noregi
2. Magnús K. Magnússon Víkingur
3-4. Ingi Darvis Rodriguez Víkingur
3-4. Magnús Gauti Úlfarsson BH
f.v. Magnús K, Seth, Magnús Gauti og Ingi
Einliðaleikur kvenna:
1. Nevena Tasic Víkingur
2. Victoria Eilertsen Noregi
3-4. Aldís Rún Lárusdóttir KR
3-4. Stella Karen Kristjánsdóttir Víkingur
f.v. Victoria, Nevena, Stella og Aldís
ÁMU skv. frétt frá Borðtennisdeild Víkings.