Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Seth Egenberg og Nevena Tasic sigruðu í borðtenniskeppni Reykjavíkurleikanna

Borðtennismót Reykjavíkurleikana 2019 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal 26. janúar 2019 í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.  Keppt var í karla og kvennaflokki þar sem allt besta borðtennisfólk landsins lék ásamt góðum gestum frá Noregi, Rúmeníu, Serbíu og Litháen.

Í karlaflokki léku í undanúrslitum Seth Egenberg frá Noregi gegn Magnúsi Gauta Úlfarssyni BH. Leikar fóru þannig að Seth Egenberg sigraði 4 – 3 í mjög spennandi og góðum leik (11-6, 9-11, 14-12, 7-11, 7-11, 12-10 og 11-5).

Í hinum undanúrslitaleiknum lék Magnús K. Magnússon Víkingi gegn Inga Darvis Rodriguez Víkingi.  Leikar fóru þannig að Magnús sigraði eftir mjög spennandi hörkuleik 4 – 3 (5-11, 12-10, 11-9, 11-1, 7-11, 13-15 og 11-7).

Úrslitaleikinn léku því Norðmaðurinn Seth Egenberg  gegn Magnúsi K. Magnússyni Víkingi.  Leikurinn var skemmtilegur og góður þar sem Seth Egenberg sigraði 4 – 2 (11-6, 5-11, 7-11, 11-7, 11-8 og 11-9).

Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Victoria Eilertsen Noregi gegn Stellu Karen Kristjánsdóttur Víkingi. Victoria sigraði nokkuð örugglega 4 – 0 (11-5, 11-5, 15-13 og 11-4).

Í hinum undanúrslitaleiknum lék Nevena Tasic Víkingi gegn Aldísi Rún Lárusdóttur KR.  Nevena sigraði nokkuð örugglega 4 – 1 (11-5, 5-11, 11-8, 11-7, og 11-9).

Úrslitaleikinn léku því Nevena Tasic Víkingi gegn Victoria Eilertsen frá Noregi. Leikar fóru þannig að Nevena sigraði eftir mjög góðan og spennandi úrslitaleik  4 – 3 (11-4, 11-5, 7-11, 9-11, 11-6, 12-14 og 11-7).

 

Úrslitin í mótinu voru þannig:

Einliðaleikur karla:

1.     Seth Egenberg Noregi

2.     Magnús K. Magnússon Víkingur

3-4.  Ingi Darvis Rodriguez Víkingur

3-4.  Magnús Gauti Úlfarsson BH

 f.v. Magnús K, Seth, Magnús Gauti og Ingi

 

Einliðaleikur kvenna:

1.     Nevena Tasic Víkingur

2.     Victoria Eilertsen Noregi

3-4.  Aldís Rún Lárusdóttir KR

3-4.  Stella Karen Kristjánsdóttir Víkingur

 f.v. Victoria, Nevena, Stella og Aldís

 

ÁMU skv. frétt frá Borðtennisdeild Víkings.

Aðrar fréttir